Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 20. júní 2013 08:12
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur KSÍ 
Kvennalandsliðið mætir Dönum í dag
Kvenaboltinn
Ísland mætir Danmörku í dag.
Ísland mætir Danmörku í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landslið kvenna í fótbolta leikur í dag sinn síðasta æfingaleik fyrir Evrópumótið í Svíþjóð í næsta mánuði.

Liðið mætir þá Dönum í vináttulandsleik sem fer fram í Viborg í Danmörku en leikurinn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma.

Á vef KSÍ kemur fram að aðstæður eru hinar bestu í Viborg á æfði íslenska liðið á keppnisvellinum í gær. Allir leikmenn hópsins eru heilir og klárir í slaginn.

Þetta er sjöunda viðureign þessar þjóða hjá A-landsliði kvenna en Danir hafa unnið fimm sinnum en Íslendingar einu sinni, á Algarve 2011.
Slapp
banner
banner