Heimild: Fréttablaðið
Rúnar Kristinsson mun ekki stýra KR gegn Víkingi Ólafsvík í Pepsi-deildinni á sunnudag.
Rúnar er að afla sér UEFA Pro Licence þjálfaragráðu hjá enska knattspyrnusambandinu og því er hann á leið til Tyrklands til að fylgjast með HM U20 ára liða en þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Pétur Pétursson, aðstoðarmaður Rúnars, mun því stýra KR í leiknum á sunnudag.

Rúnar er í góðum hópi þjálfara á námskeiðinu því á meðal manna þar eru Ryan Giggs, Gary Neville, Paul Ince og Stephane Henchoz.
,,Við erum um tuttugu sem erum á þessu námskeiði og það tekur um eitt og hálft ár að klára það. Ég og Henchoz erum þeir einu sem erum ekki Bretar. Við byrjuðum í janúar og verðum því fram á næsta vor,“ sagði Rúnar við Fréttablaðið.
„Þótt sumir þeirra séu frægari en margir aðrir eru þetta bara venjulegir gaurar, eins og ég og þú. Það er mjög gaman að spjalla við alla þessa menn enda hafa þeir frá mörgu skemmtilegu að segja. Það eru alls kyns sjónarmið sem koma fram og það hefur opnað huga manns og víkkað sjóndeildarhringinn. Þetta er mjög krefjandi nám en mjög gefandi.“
Alls fer Rúnar um 7-8 sinnum utan vegna námsins auk þess sem símafundir eru haldnir reglulega.