Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 08. maí 2004 00:00
Bremen Þýskalandsmeistari
Leikmenn Bremen fagna titlinum á flugvellinum í Bremen
Leikmenn Bremen fagna titlinum á flugvellinum í Bremen
Werder Bremen urðu í dag Þýskalandsmeistarar í knattspyrnu þegar þeir báru sigurorð af Bayern Munchen. Þrjú mörk á fyrstu 35. mínútum leiksins tryggði níu stiga forskot á Bayern þegar tvær umferðir eru eftir. "Þetta var frábær leið til að kóróna stórfenglegt tímabil" sagði Thomas Schaaf þjálfari Bremen.

Oliver Kahn gerði mistök í fyrsta markinu sem missti boltann eftir slappt skot frá Ailton og króatíski landsliðsmaðurinn Ivan Klasnic fylgdi eftir og skoraði á 19. mínútu. Á 26. mínútu tvöfaldaði franski landsliðsmaðurinn Johan Micoud forustuna með skemmtilegu marki og Ailton skoraði svo með þrumuskoti 10. mínútm fyrir hálfleikinn. Roy Makaay minnakði muninn á 56. mínútu en nær komust Bæjarar ekki.

"Ég vil óska Werder til hamingju með titilinn. Þeir hafa átt frábært tímabil og verðskulda að vera meistarar" sagði Ottmar Hitzfeld þjálfari Bayern. "Werder vou ekkert stressaðir og spiluðu frábæran fótbolta í dag. Það gerðum við ekki" bætti Hitzfeld við.
Slapp
banner
banner