Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 09. maí 2004 00:00
Magnús Már Einarsson
Spænski í gærkvöldi - Real M. og Barcelona töpuðu
Samuel Eto'o lék Real Madrid grátt í gærkvöldi.  Hér skorar hann annað marka sinna.
Samuel Eto'o lék Real Madrid grátt í gærkvöldi. Hér skorar hann annað marka sinna.
Mynd: Magnús Már Einarsson
Tveir leikir fóru fram í La Liga í gærkvöldi. Real Madrid tapaði sínum fjórða leik af seinustu fimm og sautján leikja hrina Barcelona án taps lauk. Þar með getur Barcelona tryggt sér titilinn með sigri á Real Betis í dag.

Real Madrid-Mallorca 2-3
Á elleftu mínútu fékk Samuel Eto'o langa sendingu, lék á Raúl Bravo og vippaði yfir Iker Casillas í marki Real Madrid. Kamerúninn Eto'o sem að nýlega var valinn knattspyrnumaður Afríku byrjaði feril sinn hjá Real Madrid. Sex mínútum síðar náðu heimamenn að jafna og þar var að verki Francisco Pavon með skalla eftir hornspyrnu David Beckham en dekkunin hjá Mallorca var ekki sannfærandi í þessu marki. Eftir þetta áttu heimamenn leikinn og virtist aðeins vera spurning hvenar að þeir bættu við öðru marki. Það kom hinsvegar eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar að Mallorca komst aftur yfir. Á þrítugustu og fimmtu mínútu fékk Eto'o boltann á sínum eigin vallarhelmingi, lék fyrst á Luis Figo og svo á Pavón, hélt Raúl Bravo frá sér og skoraði. Frábært einstaklingsframtak hjá Eto'o.

Á 42.mínútu skoraði David Campano beint úr aukaspyrnu af tuttugu metra færi en setja má spurningarmerki við varnarvegg Real Madrid og vinnu Iker Casillas í þessu marki. Real Madrid hóf síðari hálfleikinn af krafti vitandi það að liðið þyrfti að skora þrjú mörk til að Valencia myndi ekki eiga möguleika á að ná titlinum í dag. Á 51.mínútu náði Luis Figo að minnka muninn en hann hélt ró sinni og skoraði úr vítaspyrnu sem að þurfti að framkvæmta tvisvar. Mark var dæmt af Ronaldo skömmu síðar vegna þess að hann handlék boltann. Mallorca sigraði og þriðji titilinn að renna Real Madrid úr greipum á þessu tímabili. Mallorca tryggði hinsvegar sæti sitt í deildinni nánast með þessum sigri.

Real Madrid: Iker Casillas; Míchel Salgado, Pavón, Raúl Bravo (Cambiasso, min.70), Roberto Carlos; Figo, Beckham, Helguera, Solari (Portillo, min.75); Raúl, Ronaldo.
Mallorca: Leo Franco; Cortés, Lussenhoff, Niño, Poli; Finidi, Marcos (Nadal, min.80), Pereyra, Campano (Bruggink, min.66); Etoo, Delibasic (Nené, min.56).


Celta Vigo-Barcelona 1-0
Celta Vigo komst upp úr fallsæti með góðum sigri á Barcelona. Heimamenn spiluðu sterkan varnarleik og náðu að skora á 42.mínútu þegar að Edu skoraði laglegt mark. Í síðari hálfleik fengu heimamenn vítaspyrnu eftir að brotið var á Edu. Peter Luccin tók spyrnuna en Victor Valdes náði að verja í stöngina og út. Þar með tapaði Barcelona sínum fyrsta leik í síðustu sautján leikjum.

Celta: Cavallero, Velasco, Méndez, Cáceres, Juanfran, Oubiña (José Ignacio m.76), Luccin, Giovanella, Mostovoi (G. López m.87), Edu, Milosevic (Ilic m.66).
Barcelona: V. Valdés, Reiziger (Kluivert m.65), Márquez, Oleguer, Van Bronckhorst, Davids, Iniesta (Gabri m.45), Cocu, Xavi (Luis Enrique m.80), Ronaldinho, Saviola.

Slapp
banner
banner
banner
banner