Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. maí 2004 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Spá Fótbolti.net fyrir 1.deild
Þá er loksins komið að spá okkar hér á Fótbolti.net fyrir fyrstu deild karla sem að hefst næstkomandi sunnudag. Við fengum sex spekinga til að spá og gaf hver sérfræðingurinn liðunum stig. Liðið í fyrsta sæti fékk tíu stig, liðið í öðru sæti níu stig og svo framvegis.

Spekingar okkar voru Willum Þór Þórsson þjálfari KR, Magnús Gylfason þjálfari ÍBV, Guðni Kjartansson þjálfari U-19 ára landslið Íslendinga, Luka Kostic þjálfari U-17 ára landsliðsins, Þorlákur Árnason þjálfari Fylkis og Sigurður Jónsson þjálfari Víkings.

Hér að neðan má sjá umfjöllun um liðin í réttri röð og neðst má svo einnig sjá spánna í heild sinni.


Valur 1.sæti með 58 stig
Heimasíða: htp://www.valur.is
Stuðningsmannasíður:
htp://www.valsarar.tk og htp://www.valsarar.blogspot.com
Heimavöllur: Hlíðarendi
Búningur: Peysa: Rauð, Stuttbuxur: Hvítar og Sokkar: Rauðir
Varabúningur: Peysa: Blá, Stuttbuxur: Hvítar og rauðar og Sokkar: Hvítir og Rauðir
Þjálfari: Njáll Eiðsson

Komnir:
Andri Már Óttarsson frá Fylki
Ágúst Guðmundsson frá Danmörku
Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá ÍA
Freyr Brynjarsson frá Hetti
Jóhannes Gíslason frá ÍA
Þórður Jensson frá HK
Þórhallur Örn Hinriksson frá KR

Farnir:
Ármann Smári Björnsson til FH
Ellert Jón Björnsson til ÍA
Guðmundur Jónsson til Bolungarvík
Guðni Rúnar Helgason til Fylkis
Haraldur Ingi Shoshan til KFS
Hjörvar Hafliðason til KR
Jakob Már Jónharðsson til Keflavík
Thomas Maale til Danmörku
Zoran Stosic til Austurríkis


Valur féll úr efstu deild í fyrra í annað skiptið á þremur árum. Sumarið 2002 sigraði liðið fyrstu deildina og tapaði aðeins þremur leikjum en líklegast verður eitthvað annað uppi á teningnum núna. Liðið hefur fengið góðan styrk í mönnum eins og Baldri Aðalsteinssyni og Þórhalli Hinrikssyni sem að báðir hafa orðið Íslandsmeistarar með ÍA og KR. Aftur á móti hefur liðið misst tvo lykilmenn Guðna Rúnar Helgason sem að fór í Fylki og Ármann Smára Björnsson sem að fór í FH en þeir tveir mynduðu miðvarðarpar Valsara í fyrra.

Margir telja það aðeins formsatriði fyrir Valsara að fara aftur upp og vissulega er liðið mjög sterkt með Ólaf Þór Gunnarsson í markinu og bræðurna Jóhann og Sigurbjörn Hreiðarssyni á miðjunni. Liðið hefur náð ágætis úrslitum í vorleikjunum, lenti í þriðja sæti í sínum riðli í deildabikarnum og þá sigraði það Canela Cup sem að fram fór á Spáni en auk Valsara tóku þrjú úrvalsdeildarlið þátt í mótinu. Á Canela var Baldur Ingimar Aðalsteinsson valinn besti leikmaður mótsins og gæti hann sprungið út í sumar.


Breiðablik 2.sæti með 53 stig
Heimasíða: htp://www.breidablik.is
Heimavöllur: Kópavogsvöllur
Búningur: Peysa: Græn og hvít, Stuttbuxur: Hvítar og Sokkar: Hvítir
Varabúningur: Peysa: Hvít, Stuttbuxur: Hvítar og Sokkar: Hvítir
Þjálfari: Bjarni Jóhannsson

Komnir:
Friðrik Ómarsson frá Stjörnunni
Hjörvar Freyr Eiðsson frá Drangi
Hlynur Kárason frá Hamar
Sverrir Sverrisson frá Fylki
Kjartan Antonsson frá Fylki
Pétur Benediktsson frá HK
Vignir Ingi Bjarnason frá HK
Pétur Sigurðsson frá FH (Eftir að fá félagaskipti)

Farnir:
Axel Rúnar Eyþórsson til Danmerkur
Sævar Pétursson hættur


Eftir tvö ár í fyrstu deild sem að hafa valdið nokkrum vonbrigðum ætla Blikar að setja markið hátt í sumar. Liðið hefur fengið Bjarna Jóhannsson sem þjálfara og fengið tvo sterka leikmenn frá Fylki þá Kjartan Antonsson og Sverri Sverrisson. Liðið sigraði um síðustu helgi neðri deild deildabikarsins þegar að liðið lagði Fjölni í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum.

Breiðablik fór mjög sannfærandi í gegn um riðlakeppnina í neðri deildinni og skoraði alls 30 mörk í þeim fimm leikjum sem að liðið lék og fékk aðeins þrjú mörk á sig. Þetta er auðvitað frábær árangur og þó að andstæðingarnir hafi allir verið úr annari eða þriðju deild þá er ljóst að sóknarleikur Blika er mun sterkari en undanfarin ár.

Þá verður varnarleikurinn væntanlega sterkari með tilkomu Kjartans og hafa Blikar alla burði til að komast á ný upp í efstu deild. Það er hinsvegar allt annað en sjálfgefið og verður spennandi að fylgjast með gengi þeirra í sumar en margir ungir strákar eru í liðinu.


Þróttur R. 3.sæti með 51 stig
Heimasíða: http://www.trottur.is
Heimavöllur: Valbjarnarvöllur
Búningur: Peysa: Rauð og hvít, Stuttbuxur: Hvítar og Sokkar: Hvítir
Varabúningur: Peysa: Svört, Stuttbuxur: Svartar og Sokkar: Svartir
Þjálfari: Ásgeir Elíasson

Komnir:
Daníel Hafliðason frá Víkingi
Davíð Logi Gunnarsson frá Haukum
Hans Sævar Sævarsson frá Aftureldingu
Jónas Guðmansson frá Fylki
Stefán Logi Magnússon frá Víkingi
Valgarður Finnbogason frá Fjölni
Vignir Sverrisson hættur

Farnir:
Björgúlfur Hideaki Takefusa til Fylkis
Charles McCormick til Írlands
Gestur Pálsson til Danmerkur
Hreinn Ómar Smárason til ÍV


Þróttur féll úr efstu deild í fyrra og fannst mörgum knattspyrnuáhugamönnum leiðinlegt að sjá liðið falla þar sem að það spilaði skemmtilegan fótbolta. Liðið var í raun ekki í mikilli fallhættu fyrr en undir lokin en þá féll það. Liðið sýndi oft á tíðum frábæra takta og spilaði sóknarbolta og voru tveir markahæstu mennirnir í Landsbankadeildinni í fyrra úr Þrótti, þeir Sören Hermansen og Björgúlfur Takefusa en þeir skoruðu tíu mörk líkt og Gunnar Heiðar Þorvaldsson í ÍBV. Nú er Björgúlfur farinn til Fylkis en annars hefur liðið misst ótrúlega fáa menn miðað við að hafa fallið.

Þróttarar hafa hinsvegar orðið fyrri áfalli því að hinn frábæri markvörður Fjalar Þorgeirsson er með brjósklos og gæti misst af meirihluta tímabilsins. Þeir hafa fengið Stefán Loga Magnússon frá Víkingi til að fylla hans skarð og verður spennandi að sjá hvort að honum takist það.

Í sóknarlínunni verður mjög athyglisvert að fylgjast með hinum unga og bráðefnilega Hjálmari Þórarinssyni en hann mun fá tækifæri núna þar sem að Björgúlfur er farinn. Þróttarar hafa mannskapinn til að komast upp í efstu deild á nýjan leik og vonandi er að liðið muni spila skemmtilegan fótbolta í sumar og þeir munu pottþétt setja svip sinn á deildina sem og stuðningsmenn þeirra “Köttararnir”.



Þór A. 4.sæti með 38 stig
Heimasíða: http://www.thorsport.is
Heimavöllur: Akureyrarvöllur
Búningur: Peysa: Hvít, Stuttbuxur: Rauðar og Sokkar: Hvítir
Varabúningur: Peysa: Gul og svört, Stuttbuxur: Svartar og Sokkar: Svartir
Þjálfarar: Pétur Ólafsson og Júlíus Tryggvason

Komnir:
Andri Rúnar Karlsson frá Vask
Dragan Stojanovic frá Fjarðabyggð
Vilmar Freyr Sævarsson frá Hetti
Ibra Jagne frá útlöndum
Sigurður Donys Sigurðsson frá Einherja
Steinn Símonarson frá Fjölni
Lee Sharkey frá útlöndum
Jón Stefán Jónsson frá Vask
Tryggvi Valdimarsson frá Víkingi

Farnir:
Jóhann Þórhallsson í KA
Kristján Elí Örnólfsson í KA
Orri Freyr Óskarsson í Grindavík
Páll Viðar Gíslason hættur
Hlynur Svan Eiríksson hættur


Þórsarar hafa fengið til sín marga leikmenn frá síðasta sumri, alls ein níu stykki og því ætti hópurinn að verða sterkari og breiddin meiri en síðasta sumar, en þá lentu Þórsarar stundum í vandræðum með að ná í hóp fyrir leiki. Mjög spennandi verður að fylgjast með hvernig útlendingarnir koma út hjá Þór, auk þess sem að Þórsurum er mikill liðsstyrkur í strákunum sem koma austan af landinu, þeim Sigurði Donys, Vilmari Frey og Dragan Stojanovic. En fyrir eru hjá liðinu mjög góðir leikmenn á borð við Hlyn Birgisson, Inga Hrannar Heimisson, Alexandre Santos, Hörð Rúnarsson, Þórð Halldórsson og Frey Guðlaugsson sem allir eiga það sameiginlegt að hafa spilað í úrvalsdeild fyrir liðið, auk þess sem Hlynur er fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður. Við hér á fótbolta.net mælum einnig með því að fólk fylgist vel með tveim ungum leikmönnum í liði Þórs, þeim Hallgrími Jónassyni og áður nefndum Sigurði Donys sem eru báðir í u-19 ári liði Íslands.

Þórsarar hafa misst færri leikmenn en þeir hafa fengið, en hins vegar voru þeir menn sem fóru algjörir lykilmenn fyrir liðið og í raun eru tveir þeirra með efnilegustu leikmönnum landsins en það eru þeir Orri Freyr Óskarsson og Jóhann Þórhallsson. En auk þeirra misstu Þórsarar, Kristján Elí Örnólfsson sem fór með Jóhanni til KA. Einnig urðu Þórsarar fyrir mikilli blóðtöku þegar kom í ljós að sóknar/miðjumaðurinn knái Pétur Heiðar Kristjánsson getur ekkert spilað í sumar vegna krossbanda aðgerðar.

Þórsarar eru algerlega óskrifað blað í deildinni þetta árið og í raun veit enginn við hverju má búast af þeim í sumar. Þeir hafa t.d. verið að spila mjög misjafnlega í deildarbikarnum, þar sem þeir unnu meðal annars góða sigra gegn KR-ingum og Grindavík, og töpuðu naumlega fyrir Víkingi. Hins vegar virðast þeir geta dottið niður á mjög lágt plan gegn ,,slakari” liðum, því að þeir töpðu t.d. fyrir Njarðvík í deildarbikarnum. Það virðist því vera sem stöðugleiki verði aðal höfuðverkur Þórsara eins og svo oft áður. Svo virðist vera sem að nýju þjálfararnir, þeir Júlíus Tryggvason og Pétur Ólafsson ætli að leggja mikið upp úr sterkum varnarleik í sumar og verður það því væntanlega sterkasti þáttur liðsins, en sóknarleikurinn er mikið spurningarmerki.



Njarðvík 5.sæti með 30 stig
Heimasíða: http://www.umfn.is/fotboltinn
Heimavöllur: Njarðvíkurvöllur
Búningur: Peysa: Græn, Stuttbuxur: Svartar og Sokkar: Svartir
Varabúningur: Peysa: Dökkblá, Stuttbuxur: Svartar og Sokkar: Svartir
Þjálfari: Helgi Bogason

Komnir:
Alfreð Elías Jóhannsson frá Njarðvík
Einar Sigurjón Oddsson frá Víkingi R.
Kristján Helgi Jóhannsson frá Keflavík
Aron Már Smárason frá Keflavík
Gunnar Sveinsson frá Haukum

Ólafur Þór Gylfason frá Víði
Milan Janosevic frá Serbíu
Guðmundur Þór Brynjarsson frá Víði

Farnir:
Magnús Þór Kristófersson til Danmerkur
Óskar Örn Hauksson til Grindavíkur
Arjen Kats til Hollands
Jóhann Helgi Aðalgeirsson til Grindavíkur
Ellert Örn Erlingsson til BÍ


Njarðvík kom á óvart í fyrstu deildinni í fyrra þar sem að þeir voru nýliðar með því að lenda í sjötta sæti en þeim var meðal annars spáð falli af okkur hér á Fótbolti.net í fyrra. Í vetur hefur liðið styrkt sig til muna en reyndar misst hinn efnilega Óskar Örn Hauksson sem að var öflugur á síðasta tímabili.

Liðið hefur fengið Alfreð Jóhannsson sóknarmann frá Grindavík, Kristján Jóhannsson sem að var fastamaður í liði Keflvíkinga á síðustu leiktíð, Einar Oddsson frá Víking og Gunnar Sveinsson sem að var fastamaður hjá Haukum og Milan Janosevic frá Serbíu. Það er alltaf erfitt að fylgja eftir góðum árangri á sínu öðru tímabili í deildinni og þó svo að liðið hafi styrkst þá gæti það einnig lent í vandræðum. Þá gæti það allt eins verið í toppbaráttunni en sérfræðingar okkar telja að það muni sigla nokkuð lygnan sjó.

Í fyrra tók liðið þátt í nokkrum markaleikjum og gerði meðal annars 6-6 jafntefli við Leifur/Dalvík. Ef að liðið nær að bæta varnarlínunni þá gæti það náð langt enda með fína sóknarmenn. Hinn stóra og stæðilega Alfreð og Eyþór Guðnason.




Haukar 6.sæti með 25 stig
Heimasíða: http://www.haukar.is/fotbolti
Heimavöllur: Ásvellir
Búningur: Peysa: Rauð, Stuttbuxur: Rauðar og Sokkar: Rauðir
Varabúningur: Peysa: Hvít, Stuttbuxur: Rauðar og Sokkar: Rauðir
Þjálfari: Þorsteinn H. Halldórsson

Komnir:
Zoran Panic frá HK
Arnar Steinn Einarsson frá Víkingi R.
Valþór Hilmar Halldórsson frá KR

Farnir:
Davíð Logi Gunnarsson til Þróttar R.
Guðlaugur Andri Axelsson í Leikni R.
Gunnar Sveinsson til Njarðvíkur
Hilmar Rafn Kristinsson í HK
Ingvi Þór Rafnsson í Huginn
Kristján Ómar Björnsson til Svíþjóðar
Ómar Freyr Rafnsson í Huginn
Magnús Jón Björgvinsson til Þrótt V.
Sigmundur Pétur Ástþórsson til FH
Örvar Jens Arnarsson í Leikni R.
Þorsteinn Magnússon í Stjörnuna
Birgir Rafn Birgisson til HK


Haukarnir eru nú að hefja sitt þriðja tímabil í fyrstu deild í röð. Í vetur hafa margir leikmenn yfirgefið félagið en þó eru flestir sterkustu leikmenn liðsins ennþá eftir eins og fyrirliðinn og varnarjaxlinn Darri Johansen, vængmaðurinn Jón Gunnar Gunnarsson, miðjumaðurinn Goran Lukic og sóknarmaðurinn Sævar Eyjólfsson svo einhverjir séu nefndir. Þá hefur liðið einnig fengið miðjumanninn Zoran Panic frá HK.

Mest munar þó um að fyrrnefndur Sævar Eyjólfsson verður með á fullum krafti í sumar en þessi knái framherji missti af meirihluta mótsins í fyrra vegna meiðsla. Nú er hann hinsvegar búinn að jafna sig og skoraði meðal annars sjö mörk í sex leikjum í deildabikarnum fyrir Hauka.


Völsungur 7.sæti með 24 stig
Heimasíða: htp://www.volsungur.is
Heimavöllur: Húsavíkurvöllur
Búningur: Peysa: Hvít, Stuttbuxur: Grænar og Sokkar: Grænir
Varabúningur: Peysa: Appelsínugul, Stuttbuxur: Svartar og Sokkar: Appelsínugulir
Þjálfari: Ásmundur Arnarsson

Komnir:
Borisav Lalic frá Serbíu
Svavar Sigurðsson frá FH
Heiðar Ingi Ólafsson frá Fram
Oddur Helgi Guðmundsson frá KR

Farnir: Enginn.


Hópurinn hjá Völsungum hefur ekki breyst mikið frá því í fyrra þegar þeir unnu 2.deildina með miklum yfirburðum, þar sem þeir m.a. skorðuð yfir 60 mörk. Þeir hafa bætt við sig þremur ungum strákum frá úrvalsdeildarliðum auk þess sem Borisav Lalic kemur frá Serbíu.

Völsungar hafa mjög ungt og reynslulaust lið, fyrir utan einstaka reynslubolta inn á milli eins t.d. Ásmund Arnarsson og Róbert Ragnar Skarphéðinsson, hins vegar eru þeir mjög ferskir og vel spilandi sem ætti að geta unnið upp á móti reynsluleysinu.

Völsungar eru með nokkra mjög frambærilega leikmenn innan raða sinna, t.d. Baldur Sigurðsson (leikmaður u-21 landsliðsins) sem er einn efnilegasti leikmaður landsins, auk þess sem Hermann Aðalgeirsson er mjög sprækur leikmaður. Boban Jovic er hins vegar algjör lykilmaður í þessu liði og mun mikið mæða á honum í sumar ásamt því að þjálfarinn, Ásmundur Arnasson gæti spilað eitthvað til að koma með reynslu í liðið.

Aðalsmerki Völsunga hefur verið skemmtilegur sóknarleikur, enda liðið ungt og mjög vel spilandi. Þó svo að liðið spili mikinn sóknarleik, þá notar Völsungur einungis einn sóknarmann í leikjum, enn á móti kemur að þeir hafa mjög marksækna miðjumenn. Mikilvægt er fyrir Völsunga að byrja tímabilið vel því að eins og áður hefur verið sagt er liðið mjög reynslulaust og ekki víst að þessir ungu strákar myndu standa það af sér ef liðið myndi byrja illa. Völsungar leggja eflaust mikið upp úr því að vinna alla sína heimaleiki, enda liðið mjög sterkt á heimavelli, Húsavík er því staður sem önnur lið ættu að vara sig á í sumar.


HK 8.sæti með 21 stig
Heimasíða: htp://www.hk.is
Heimavöllur: Kópavogsvöllur
Búningur: Peysa: Hvít, Stuttbuxur: Rauðar og Sokkar: Hvítir

Varabúningur: Peysa: Svört, Stuttbuxur: Svartar og Sokkar: Rauðir Þjálfari: Gunnar Guðmundsson
Komnir:
Gunnar Guðmundsson frá Stjörnunni
Árni Thor Guðmundsson frá Leiftri/Dalvík
Pálmar Hreinsson frá Aftureldingu
Birgir Rafn Birgisson frá Haukum
Pétur Guðmundsson frá Leiftra
Hilmar Rafn Kristinsson frá Haukum
Jóhann Björnsson frá ÍR
Júlíus Freyr Valgeirsson frá Sindra
Brynjar Skúlason frá Fjarðarbyggð

Farnir:
Zoran Panic í Hauka
Rúrik Gíslason til Anderlecht
Þórður Jensson í Val
Ólafur V. Júlíusson í Fylki
Atli Þór Jakobsson í BÍ
Benedikt Emilsson Í BÍ
Vignir Ingi Bjarnason í Breiðablik
Pétur Benediktsson í Breiðablik
Haraldur V. Hinriksson hættur


HK lenti í áttunda sæti í fyrra eftir nokkurra fjarveru úr fyrstu deild. hefur misst tvo fastamenn úr liðinu frá því í fyrra þá Þórð Jensson og Ólaf Júlíusson. Hinsvegar hefur liðið fengið Árna Thor Guðmundsson frá Leiftri/Dalvík en það var einn albesti varnarmaðurinn í fyrstu deildinni í fyrra. Þá hefur liðið fengið marga aðra ágætis leikmenn og þykir líklegt að vörnin þeirra verði sterk í sumar með þá Árna Thor og Ásgrím Albertsson í hjarta hennar. Þá er Gunnleifur Gunnleifsson í markinu en hann á meðal annars landsleiki að baki og hefur spilað með Keflavík og KR í efstu deild.

Liðið hefur misst tvo sterka pósta af miðjunni þá Zoran Panic sem að fór í Hauka og Harald V. Hinriksson sem að er hættur. Spurningin er hvernig liðinu tekst að fylla þeirra skörð en framarlega á miðjunni eða á vinstri kanti mun Hörður Már Magnússon líklega leika og verður hann heilinn í sóknarleik liðsins auk þess sem að gaman verður að fylgjast með hinum unga Bjarka Má Sigvaldasyni sem að er í U-17 ára landsliði Íslendinga.


Stjarnan 9.sæti með 19 stig
Heimasíða: http://www.stjarnan.is/fotbolti
Stuðningsmannasíða: http://www.stjornu.tk
Heimavöllur: Stjörnuvöllur
Búningur: Peysa: Blá, Stuttbuxur: Bláar og Sokkar: Bláir
Varabúningur: Peysa: Gul, Stuttbuxur: Gular og Sokkar: Gulir
Þjálfarar: Valdimar Kristófersson og Rúnar Páll Sigmundsson

Komnir:
Mihajlo Bibercic frá Serbíu (Eftir að fá félagaskipti)
Dalibor Lazic frá Serbíu (Eftir að fá félagaskipti)
Farnir:
Vilhjálmur Ragnar Vilhjálmsson í Víking R.
Sigurjón Grétar Einarsson í Aftureldingu
Gunnar Guðmundsson í HK
Friðrik Ómarsson í Breiðablik


Sérfræðingar Fótbolta.net um fyrstu deildina spá Stjörnunni níunda sæti og þar með falli í aðra deild. Liðið hefur ekki ennþá fengið neina leikmenn fyrir komandi átök og misst einn af sínum sterkustu mönnum Vilhjálm Vilhjálmsson í Víking. Reyndar ætlar Stjarnan að fá Mihajlo Bibercic og Dalibor Lazic frá Serbíu en þeir hafa ekki ennþá fengið félagakskipti. Bibercic er sóknarmaður og markahæsti erlendi leikmaðurinn sem að leikið hefur hér á landi og verði hann í formi gæti hann orðið skæður þrátt fyrir að vera á síðustu árunum í boltanum og verður gaman að sjá hann í sumar. Lazic er 22 ára miðjumaður og gæti einnig styrkt Stjörnuna mjög.

Stjarnan lenti í fjórða sæti í fyrstu deild í fyrra og rétt missti af sæti í úrvalsdeild árið 2002. Liðið hefur hinsvegar misst marga lykilmenn á seinustu tveimur árum og virðist ekki líklegt til afreka í sumar. Í efri deild deildabikarsins tapaði liðið öllum sjö leikjum sínum og var með 28 mörk í mínús í markatölu sem að telst ekki gott. Liðið fékk 33 mörk á sig og skoraði fimm í þessum leikjum. Áhugi bæjarbúa í Garðarbæ hefur aldrei verið mikill og í raun skömm fyrir þetta bæjarfélag að ekki fleiri mæti á völlinn hjá Stjörnunni.


Fjölnir 10.sæti með 11 stig
Heimasíða: http://www.fjolnismenn.com
Heimavöllur: Fjölnisvöllur
Búningur: Peysa: Gul, Stuttbuxur: Gular og Sokkar: Gulir
Varabúningur: Peysa: Blá, Stuttbuxur: Gular og Sokkar: Gulir
Þjálfari: Steinar Ingimundarson

Komnir:
Svavar Hjaltested frá Víkingi R.
Garpur I. Elísarbetarson frá KR
Pálmi Jóhannsson frá Núma
Hallur Kristján Ásgeirsson frá Víkingi Ólafsvík

Farnir:
Steinn Símonarson í Þór A.
Hrafnkell Pálmi Pálmason í Aftureldingu
Þorsteinn V. Einarsson í Breiðablik
Björn Teitsson til Þýskalands
Sigurður H. Hallvarðsson í Þrótt R.
Ingibjörn Pétursson í UMFH
Valgarður Finnbogason í Þrótt R.
Ilija Kitic til Austurríkis (Kemur líklega aftur)
Egill Örn Sverrrisson í Núma
Hafsteinn Þór Harðarssson í UMFH


Lið Fjölnis lenti í öðru sæti í annari deildinni og komst upp í fyrstu deild í fyrstu tilraun en liðið varð í öðru sæti í þriðju deild árið 2002. Liðið hefur misst nokkuð marga leikmenn frá því í fyrra og munar einna mest um miðjumanninn Stein Símonarson sem að skoraði níu mörk í fyrra en hann er farinn í Þór A.

Samkvæmt okkar heimildum mun Serbinn, Ilija Kitic spila áfram með liðinu í sumar þó að hann hafi spilað í Austurríki í vetur. Spilið mun líklega fara mikið í gegnum hann. Fjölnir skoraði sextíu mörk í átján leikjum í annari deildinni í fyrra eða þremur minna en Völsungur sem að sigraði deildina.

Sóknin verður líklega ennþá beittari á þessu tímabili eftir að liðið fékk Hall Ásgeirsson frá Víkingi Ólafsvík en þar er á ferð öflugur markaskorarari. Spurningin er hinsvegar hvort að Fjölnismenn nái að halda í Hall allt sumarið en kauði á Íslandsmetið í félagaskiptum. Þá á liðið einn af efnilegri hægri kantmönnum landsins en það er Ívar Björnsson og mælum við með því að fólk fylgist vel með honum í sumar.




Spá sérfræðingana lítur svona út.
1.Valur 58 stig
2.Breiðablik 53 stig
3.Þróttur R. 51 stig
4.Þór.A 38 stig
5.Njarðvík 30 stig
6.Haukar 25 stig
7.Völsungur 24 stig
8.HK 21 stig
9.Stjarnan 19 stig
10 Fjölnir 11 stig
Slapp
banner
banner
banner