sun 06. júní 2004 00:39
Magnús Már Einarsson
Henning á leið frá KR, nokkur lið vilja fá hann
Mynd: Magnús Már Einarsson
Henning Eyþór Jónasson er líklega á leið frá KR. Henning sem er frá Stokkseyri á bara hálft ár eftir af samningi sínum við KR. Hann leikur oftast sem framherji en á undirbúningstímabilinu spilaði hann í vinstri bakverði með KR og var oftar en ekki í byrjunarliði. Henning hefur hinsvegar fengið fá tækifæri með KR í Landsbankadeildinni, komið einu sinni inn á sem varamaður og einu sinni verið á varamannabekknum án þess að koma inn á.

Henning sem var í láni hjá Aftureldingu í fyrra er að reyna að fá sig lausan frá KR en hann tjáði fréttaritara Fótbolta.net í dag að Þróttur, Breiðablik og Haukar hefðu öll talað við sig auk þess sem Fjölnir hefði sýnt einhvern áhuga. Líklegast væri að hann færi í Þrótt eða Breiðablik.

Við munum fylgjast með þessu máli hér á Fótbolti.net en fyrstudeildarliðin Þróttur og Breiðablik virðast ætla í harða baráttu um Henning.
Slapp
banner
banner
banner