Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður Völsungs, skoðar þessa dagana aðstæður hjá norska félaginu Stabæk.
Ásgeir er 17 ára gamall kantmaður og framherji en hann hefur þátt fyrir ungan aldur leikið tvö heil tímabil með meistaraflokki Völsungs.
Í sumar skoraði hann fjögur mörk í 17 deildar og bikarleikjum en í fyrra skoraði hann fimm mörk þegar liðið sigraði 2. deildina.
Þá á Ásgeir einnig að baki leiki með bæði U19 og U17 ára landsliði Íslands.
Athugasemdir