Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 07. júní 2004 23:27
Hafliði Breiðfjörð
Myndaveisla (sýnið þolinmæði meðan þær hlaðast)
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Það fór ekki framhjá nokkrum Íslending að á laugardag var landsleikur milli Englands og Íslands í Manchester á Englandi. Vel á þriðja þúsund Íslendinga fóru á leikinn en aldrei hafa fleiri mætt á íslenskan leik á erlendri grundu. Við hér á Fótbolti.net mættum á völlinn í frábærri ferð ÍT ferða og mynduðum í bak og fyrir það sem fyrir augu bar.

ÍT ferðir hafa nú tryggt sér aðgang að miðum á heimaleiki Liverpool, Manchester United og Chelsea á næstu leiktíð og eru auk þess að vinna í að fá miða á leiki Arsenal svo ljóst er að fótboltaþyrstir Íslendingar geta verið með annan fótinn á Englandi á næstu leiktíð.

Ómar Vilhelmsson tók flestar myndanna en auk hans tóku Hafliði Breiðfjörð og Mike Morgan nokkrar myndir en myndir Morgan eru síðastar og sérstaklega merktar. Hér að neðan eru allar myndirnar en við bendum ykkur á að sýna smá þolinmæði meðan að myndirnar hlaðast og eftir það má smella á litlu til að sjá stærri útgáfu.

Við þökkum Hans Petersen og Kodak Easy Share sérstaklega fyrir sína þáttöku í myndunum. Heilarfjöldi myndanna er 144 myndir.
Slapp
banner
banner