Norska félagið Valerenga hefur lagt fram tilboð í Viðar Örn Kjartansson framherja Fylkis.
Þetta staðfesti Ólafur Geir Magnússon í stjórn knattspyrnudeildar Fylkis í samtali við Fótbolta.net í dag.
Að sögn Óla Geirs eru Fylkismenn að skoða tilboðið í augnablikinu.
Þetta staðfesti Ólafur Geir Magnússon í stjórn knattspyrnudeildar Fylkis í samtali við Fótbolta.net í dag.
Að sögn Óla Geirs eru Fylkismenn að skoða tilboðið í augnablikinu.
Viðar Örn fór til Valerenga á reynslu í haust og félagið vill nú fá hann í sínar raðir.
Viðar Örn samdi við Fylkismenn síðastliðinn vetur en hann var næstmarkahæstur í Pepsi-deildinni í sumar með 13 mörk.
Valerenga endaði í ellefta sæti í norsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Athugasemdir