Ólafur samdi við Arsenal, einkaviðtal við hann
Enn á ný er Fótbolti.net með stórfréttir á undan flestum öðrum. Miðjumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason hefur samþykkt nýjan eins árs samning við Arsenal og mun vera skrifað undir hann á næstu dögum. Ólafur Ingi sem að var í láni hjá Fylki á síðustu leiktíð gekk til liðs við Arsenal árið 2001 en hann lék tvo leiki með aðalliði félagsins í deildabikarnum eða Carling Cup á síðustu leiktíð.
Fréttaritari Fótbolta.net hitti Ólaf Inga þegar að dregið var í 16-liða úrslit Visa-bikarsins í dag og tók viðtal við kappann sem að var hinn hressasti og sagði meðal annars frá því að hann verði líklega lánaður frá Arsenal á næsta tímabili.
Varstu allan tímann viss um að fá nýjan samning?
Nei ég fékk svona að vita þetta í apríl og fram að því var maður bara að vona að þetta gerðist og þetta gerðist sem betur fyrir. Það gekk vel hjá mér seinasta tímabil og ég náði að fylgja eftir góðu tímabili síðasta sumar heima svo að þetta kom bæði og á óvart.
Fékkstu að vita í apríl að þú ættir möguleika á að fá nýjan samning?
Já þeir sögðu mér það í apríl að þeir ætluðu að bjóða mér nýjan samning og síðan hafa verið samningaviðræður síðan þá og nú eru báðir aðilar sáttir og það verður skrifað undir það á næstu dögum.
Hvernig er að æfa með þessum stóru köllum, Henry og fleirum. Eru þeir með einhver leiðindi út í ykkur yngri leikmennina?
Nei alls ekki þeir reyna að hjálpa okkur og þeir hafa staðið á sama stað og ég stend núna þeir hafa allir verið einhverntímann ungir og þurft að ýta sér í gegn og komast að. Þeir vita alveg hvernig er að vera í þessari stöðu og reyna að miðla af sinni reynslu.
Hefur verið rætt að þú verðir lánaður eitthvað út næsta tímabil?
Það hefur verið mikið rætt og að öllum líkindum mun ég fara eitthvert á lán.
Er einhver lið sem að vilja fá þig?
Það eru nokkur lið, ekkert sem að hægt er að gefa upp en þetta kemur allt í ljós. Ég byrja á að taka undirbúningstímabilið með Arsenal og það fer svo eftir því hvernig það gengur hvert ég fer og hvernig að því er staðið.
Ertu að tala um fyrstu eða aðra deild í Englandi eða fyrir utan England? Ég hugsa að ég fari ekki niður í aðra deild, fyrsta deild kemur til greina og svo einhverstaðar annarsstaðar í mið Evrópu, Holland, Belgía, Frakkland eða Þýskaland jafnvel.
Ef að þú verður áfram hjá Arsenal, ferð ekki á láni ertu þá búinn að setja þér eitthvað markmið varðandi leikjafjölda eða slíkt?
Nei ekkert svoleiðis, ég ætla bara að fara út og gera mitt besta og mér hefur verið gefið tækifæri á að sýna mig eitt ár í viðbót og þeir hafa sýnt mér mikinn áhuga þannig að ég ætla bara að fara og gera mitt besta og vona það besta og við sjáum hvað gerist.
Hvernig er svona dæmigerður dagur hjá Arsenal?
Við byrjum að æfa svona um hálf ellefu, ellefu það er mæting uppeftir um svona hálf tíu leytið. Við æfum til svona eitt eitthvað svoleiðis. Svo borðum við allir saman og deginum er að ljúka svona tvö hálf þrjú.
Þá getur maður bara farið heim að leika sér
Þá getur maður bara farið heim að slaka á. Eins og ég, ég var að læra með þessu og klára núna stúdentspróf en núna verð ég í rólegheitum eftir æfingar.
Við óskum Ólafi góðs gengis í framtíðinni en þarna er góður drengur á ferð.




