EM: Svíar og Danir áfram en Ítalir sitja eftir
Mikil dramatík var í C-riðli Evrópumótsins í kvöld. Frændur okkar Svíar og Danir gerðu 2-2 jafntefli og komust bæði lið því áfram. Mikil sorg og reiði er á Ítalíu því þeirra menn sitja eftir með sárt ennið. Danmörk mætir Tékklandi í 8 liða úrslitum á sunnudag en Svíþjóð mætir liðinu sem endar í 2.sæti D-riðils en hvaða lið það verður kemur í ljós á morgun. Varnarmaðurinn Erik Edman verður ekki með Svíþjóð í þeim leik vegna tveggja gulra spjalda í mótinu.
Danmörk - Svíþjóð 2-2
Úrslitin sem ítalskir fjölmiðlar óttuðust urðu að staðreynd í leik Dana og Svía. Allir þeir sem fylgdust með þessum leik blása þó á samsæriskenningar um að úrslitin hafi verið ákveðin fyrirfram. Hér var ekkert svindl í gangi, aðeins jafntefli milli tveggja góðra knattspyrnuliða.
Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 28.mínútu en það skoraði maður af íslenskum ættum, Jon Dahl Tomasson. Markið var sérlega glæsilegt en Tomasson tók eftir því að Andreas Isaksson markvörður Svía stóð ekki á línunni og vippaði honum glæsilega efst í hornið á markinu.
Svíþjóð blés þá til sóknar og danski markvörðurinn Thomas Sorensen sýndi hvað hann kann og varði frábærlega. Rétt fyrir hálfleik kom Olof Mellberg boltanum framhjá Sorensen en þversláin kom til bjargar og skalli hans hafnaði þar. Staðan því 1-0 fyrir þá dönsku í hálfleik.
Á 88.mínútu kom síðasta mark leiksins. Christian Wilhelmsson átti fyrirgjöf sem Sorensen náði ekki að halda og Mattias Jonson kom boltanum í netið. Gríðarleg fagnaðarlæti urðu meðal sænskra stuðningsmanna á vellinum og einnig hjá þeim dönsku eftir að flautað hafði verið til leiksloka því þessi úrslit, 2-2, þýddu að bæði lið komast áfram í keppninni.
Danmörk: Sorensen, Henriksen, Laursen, Niclas Jensen (Bogelund 45), Helveg, Daniel Jensen (Poulsen 66), Gravesen, Gronkjaer, Tomasson, Jorgensen (Rommedahl 57), Sand.
Svíþjóð: Isaksson, Mellberg, Jakobsson, Edman, Nilsson, Ljungberg, Kallstrom (Wilhelmsson 72), Andersson (Allback 81), Jonson, Ibrahimovic, Larsson.
Ítalía - Búlgaría 2-1
Antonio Cassano og Gianluca Zambrotta voru hættulegir í fyrri hálfleik en samherjar þeirra voru þó ekki alveg með á nótunum. Besta færið fékk Alessandro del Piero en annars leit út eins og Ítalirnir væru að spila upp á jafntefli. Marco Materazzi braut síðan á sér innan teigs og Búlgarar fengu vítaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Búlgarar höfðu forystuna þegar gengið var til leikhlés því Martin Petrov skoraði úr spyrnunni. Tíðindi sem komu flestum á óvart og hefði ekki verið leiðinlegt að vera fluga á vegg sem skilur ítölsku þegar hálfleiksræðan var haldin í búningsherbergi Ítala.
Það voru aðeins tvær mínútur liðnar af síðari hálfleik þegar jöfnunarmark Ítalíu kom. Cassano skaut í tréverkið og það var síðan Simone Perrotta sem skoraði. Ítalir voru síðan sterkari aðilinn það sem eftir lifði leiks, Christian Vieri kom inn sem varamaður og átti nokkra skalla en gekk erfiðlega að hitta á markið. Cassano átti að fá vítaspyrnu en "Íslandsvinurinn" Valentin Ivanov sem var með flautuna dæmdi ekkert.
Búlgaría var nálægt því að stela sigrinum eftir aukaspyrnu en Gianluigi Buffon var vel á verði í marki Ítalíu. Í uppbótartíma kom loks markið sem þeir ítölsku biðu eftir. Antonio Cassano skoraði sigurmarkið 2-1 og fagnaði gífurlega. Þau fagnaðarlæti breyttust þó fljótt í rosaleg vonbrigði þegar hann frétti að hinum leiknum hafði lokið með jafntefli 2-2 sem þýddi að Ítalía átti ekki möguleika á áframhaldandi þátttöku.
Fróðlegt verður að lesa ítölsku blöðin á morgun.
Ítalía: Buffon, Panucci, Nesta, Materazzi (Di Vaio 83), Zambrotta, Fiore, Pirlo, Perrotta (Oddo 68), Cassano, Del Piero, Corradi (Vieri 53).
Búlgaría: Zdravkov, Borimirov, Pazhin (Kotev 64), Zagorchich, Stoyanov, Milen Petkov, Yankovich (Bojinov 45), Hristov (Dimitrov 79), Lazarov, Martin Petrov, Berbatov.

