mið 23. júní 2004 06:12
Magnús Már Einarsson
Íslenskur strákur sem var til reynslu hjá Mallorca er eftirsóttur
Mynd: Magnús Már Einarsson
Marko Pavlov er sextán ára leikmaður Stjörnunnar en faðir hans Dragi Pavlov hefur þjálfað hér undanfarin ár og er nú yngriflokkaþjálfari hjá Stjörnunni auk þess sem að hann þjálfar í knattspyrnuakademíunni. Marko sem að er með íslenskan ríkisborgararétt fór á dögunum til spænska liðsins Mallorca og var til reynslu hjá liðinu. Marko leikur ýmist í sókninni eða á miðjunni en hann er eftirsóttur og hafa fleiri lið í Evrópu verið á eftir kauða. Hann getur samið við Mallorca í mars næstkomandi en við tókum létt viðtal við kappann sem að er í úrtökuhópi fyrir U-17 ára landsliðið og vonast að sjálfsögðu til að vera í hópnum í Norðurlandamótinu og í undankeppni fyrir Evrópumótið.

Hvernig kom það til að þú fórst til Mallorca?
Umboðsskrifsstofan Santos Company, sem er á Spáni og ein sú stærsta og besta í Evrópu kom mér í samband við þá og það varð úr að ég fór. Þetta kom til á mjög skömmum tíma.

Æfðir þú með strákum á svipuðum aldri og þú?
Ég æfði með U-18 ára liði Mallorca

Hvernig fannst þér þú standa gagnvart þeim í getu?
Mér fannst mér ganga vel og fékk það ekki á tilfinninguna að ég væri verri
en þeir.

Eru fleiri erlend lið búin að spyrjast fyrir um þig?
Real Sociedad á Spáni og Club Brugge í Belgíu

Hittir þú Samuel Eto'o eða einhverja af frægustu leikmönnum Mallorca?
Ég hitti Jovan Stankovic sem er einn af betri leikmönnum þeirra og hefur
spilað lengi með liðinu. Ég hitti Samuel Eto'o ekki en skemmtilegt nokk að
ég æfði með yngri bróður hans, Oko Eto'o.

Átt þú von á samningstilboði frá Mallorca?
Þar sem sú regla gildir á Spáni að erlendir leikmenn mega ekki semja við lið
nema þeir séu orðnir 17 ára (þ.e.a.s. þá mega leikmenn undir 17 ára ekki
spila með liðum á Spáni sé þeir útlendir, svo það yrði lítið gagn í mér ef
ég færi núna;) ) þá fékk ég ekki samning strax. Ég fékk hinsvegar góð
viðbrögð frá Mallorca, þeim leist mjög vel á mig og vildu fá mig til sín í
mars þegar ég verð 17 ára.

Myndir í fréttinni:
Efri mynd til hægri: Marko Pavlov.
Neðri mynd til hægri: Marko ásamt öðrum leikmanni Mallorca
Mynd til vinstri: U-18 ára lið Mallorca
Slapp
banner
banner