mið 16. apríl 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Ungur Króati á leið til Chelsea í sumar
Mynd: Getty Images
Mario Pasalic, miðjumaður Hadjuk Split, mun skrifa undir samning hjá Chelsea í sumar.

Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur náð samkomulagi við Chelsea en hann fer í læknisskoðun hjá félaginu í maí.

Möguleiki er á að hann verði áfram á láni hjá Hadjuk Split á næsta tímabili.

,,Það er möguleiki á því en hann er lítill. Mario verður í London í lok maí í læknisskoðun og þá vitum við meira um framtíð hans," sagði Ivica Loncar umboðsmaður Pasalic.
Athugasemdir
banner
banner
banner