Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 16. apríl 2014 19:40
Brynjar Ingi Erluson
Sara Björk skoraði er Rosengård slátraði Vittsjö
Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Mynd: TM
Kvennalið Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni sigraði Vittsjö með sjö mörkum gegn einu er liðin mættust í dag en þetta var annar leikur Rosengård á þessari leiktíð.

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt af mörkum Rosengård í sigrinum en hún lék allan leikinn í dag.

Þóra Björg Helgadóttir lék þá allan leikinn í markinu hjá liðinu en Sara Björk er fyrirliði félagsins.

Liðið er á toppnum með 6 stig eftir fyrstu tvær umferðir mótsins en næsti leikur er gegn Örebro.
Athugasemdir
banner
banner
banner