Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 17. apríl 2014 06:00
Elvar Geir Magnússon
Raggi Sig kominn í bikarúrslitin í Rússlandi
Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsvarnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Krasnodar þegar liðið vann CSKA Moskvu 1-0 í undanúrslitum rússneska bikarsins í gær.

Það var Brasilíumaðurinn Wanderson sem skoraði eina mark leiksins á 28. mínútu.

Hinn undanúrslitaleikurinn fer fram í dag en þar mætast FK Rostov og Luch Energiya Vladivostok.

Ragnar spilaði sinn fyrsta deildarleik um daginn gegn Zenit en Krasnodar sem er í sjötta sæti mætir Dinamo Moskvu um komandi helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner