Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 17. apríl 2014 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo: Við áttum sigurinn skilið
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid á Spáni, var í skýjunum með liðsfélaga sína eftir 2-1 sigurinn á Barcelona í gær.

Real Madrid fagnaði sigri í spænska konungsbikarnum í gær þar sem Gareth Bale skoraði sigurmarkið undir lok leiks.

Ronaldo var fjarverandi vegna meiðsla en hann var auðvitað hæstánægður með liðsfélaga sína.

,,Við áttum skilið að vinna því við spiluðum betur og sköpuðum fleiri færi en við þurfum enn að leggja hart að okkur að vinna tvo titla í viðbót," sagði Ronaldo.

,,Við erum ánægðir og þetta hefur verið frábært fyrir okkur en við verðum að njóta dagsins og hugsa svo um deildina," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner