Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. apríl 2014 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Tata Martino: Vil biðja stuðningsmenn afsökunar
Mynd: Getty Images
Tata Martino, þjálfari Barcelona á Spáni, var eðlilega vonsvikinn með 1-2 tap liðsins gegn Real Madrid í úrslitaleik spænska konungsbikarsins í gær.

Barcelona hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel undanfarnar vikur en liðið datt úr Meistaradeild Evrópu fyrir Atletico Madrid og þá tapaði liðið fyrir Granada um helgina 1-0 og leiða Atletico Madrid og Real Madrid því spænsku deildina.

Madrídingar tóku spænska konungsbikarinn í gær og núna þarf liðið að einbeita sér að því að taka deildina.

,,Þessi ósigur særir mig gríðarlega. Ég vil þakka stuðningsmönnunum fyrir að koma alla þessa leið og styðja okkur og vil ég um leið biðja þá afsökunar fyrir að hafa ekki unnið leikinn," sagði Martino.
Athugasemdir
banner
banner
banner