fös 18. apríl 2014 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Mata: Ekki kenna Moyes um
Mata stendur með Moyes.
Mata stendur með Moyes.
Mynd: Getty Images
Juan Mata, dýrasti leikmaðurinn í sögu Manchester United, hefur komið knattspyrnustjóranum David Moyes til varnar.

Englandsmeistararnir hafa ekki gert það gott í titilvörn sinni á fyrsta tímabili Moyes við stjórnvölinn og getur liðið svo gott sem gleymt því að spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

En Mata, sem kom til United frá Chelsea í janúar, segir að ekki sé hægt að kenna Moyes um öll vandamál liðsins.

,,Við verðum að standa saman. Þetta er ekki rétti tíminn til að leita að sökudólgum," sagði Mata við Daily Mirror.

,,Nú er tími til að standa saman - standa með stjóranum, starfsfólki hans, leikmönnum og stjórn félagsins. Við verðum að halda áfram og halda tryggð við stjórann. Við verðum að hafa trú á honum, þetta er ekki bara honum að kenna, heldur okkur öllum."
Athugasemdir
banner
banner
banner