Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   lau 19. apríl 2014 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football Italia 
Rolando vill yfirgefa Porto fyrir Inter
Rolando hér í baráttunni gegn Roma
Rolando hér í baráttunni gegn Roma
Mynd: Getty Images
Portúgalski varnarmaðurinn Rolando er búinn að spila vel hjá Inter frá komu sinni á lánssamning til félagsins og segist vilja vera áfram hjá félaginu á næsta tímabili.

Rolando var lánaður til Inter frá Porto en segir að framtíð sín verði ekki ákveðin fyrr en eftir tímabilið þegar kemur í ljós hvort Inter nær evrópusæti eða ekki.

,,Ég er ánægður með hvernig ég er búinn að spila á tímabilinu. Sumir efuðust um gæðin mín en ég vissi að ég gæti sýnt hversu góður ég er," sagði Rolando við Inter Channel.

,,Við ætlum að einbeita okkur að komast í Evrópu og svo munum við hugsa um mína framtíð. Ég er mjög ánægður hér og vill vera áfram."
Athugasemdir
banner
banner