Cristiano Ronaldo er byrjaður að æfa með Real Madrid og vonast til að ná einhverjum mínútum af undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Bayern München í næstu viku.
Meiðsli á hné og vöðva í fótlegg hafa haldið Ronaldo frá keppni í fjóra leiki, meðal annars 2-1 sigur á Barcelona í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins.
Meiðsli á hné og vöðva í fótlegg hafa haldið Ronaldo frá keppni í fjóra leiki, meðal annars 2-1 sigur á Barcelona í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins.
Marcelo er einnig byrjaður að æfa aftur eftir nokkra fjarveru en ólíklegt er að tvímenningarnir byrji og óljóst er hvort þeir nái að vera í hóp á miðvikudaginn.
Athugasemdir