Osasuna 1 - 1 Valencia
1-0 Oriol Riera ('19)
1-1 Jonas ('82)
1-0 Oriol Riera ('19)
1-1 Jonas ('82)
Osasuna komst næstum því upp með óvæntan sigur á Valencia í fyrsta leik dagsins í spænsku deildinni.
Osasuna er í fallbaráttunni og komst yfir snemma í leiknum með marki frá Oriol Riera. Eftir markið var einbeitt sér að vörninni.
Vörn heimamanna hélt hreinu alveg þar til á 82. mínútu þegar Jonas fékk góða sendingu frá Vinicius Araujo og skoraði.
Meira var ekki skorað og Osasuna er þremur stigum frá falli á meðan Valencia er sjö stigum frá evrópusæti eftir leikinn.
Athugasemdir