Fiorentina 0 - 1 Roma
0-1 Radja Nainggolan ('26 )
0-1 Radja Nainggolan ('26 )
AS Roma á Ítalíu mun leika í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð en það var Radja Nainggolan sem sá til þess með því að skora sigurmarkið gegn Fiorentina í Seríu A í kvöld.
Nainggolan skoraði sigurmarkið á 26. mínútu leiksins en leikurinn var afar jafn frá fyrstu mínútu.
Roma hafði þó betur og er nú með 82 stig í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Juventus.
Liðið er þó 14 stigum á undan Napoli sem er í þriðja sæti en einungis fjórir leikir eru eftir og ljóst að Roma getur ekki endað neðar en annað sætið.
Athugasemdir