Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. apríl 2014 21:33
Brynjar Ingi Erluson
Cavani hetja PSG er liðið vann franska deildabikarinn
Edinson Cavani skoraði bæði mörk PSG
Edinson Cavani skoraði bæði mörk PSG
Mynd: Getty Images
Lyon 1 - 2 PSG
0-1 Edinson Cavani ('4 )
0-2 Edinson Cavani ('32, víti )
1-2 Alexandre Lacazette ('56 )

Paris Saint-Germain vann í kvöld franska deildabikarinn eftir 1-2 sigur á Lyon í úrslitaleiknum en það var úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani sem sá til þess að landaði sigrinum.

Cavani kom PSG yfir eftir einungis fjögurra mínútna leik áður en hann bætti við öðru marki úr vítaspyrnu þegar um hálftími var búinn af leiknum.

Franski framherjinn Alexandre Lacazette minnkaði muninn á 56. mínútu fyrir Lyon en lengra komst þó liðið ekki.

PSG getur unnið tvöfalt þetta tímabilið en liðið er á toppnum í frönsku deildinni með tíu stiga forskot þegar fimm leikir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner