Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist fullviss um að miðjumaðurinn Jack Wilshere verði kominn í sitt besta form fyrir Heimsmeistaramótið í sumar.
Búist er við að Wilshere snúi aftur í lið Arsenal í upphafi næsta mánaðar, en hann brákaðist á fæti í landsleik með Englendingum í byrjun mars.
,,Hann byrjaði að skokka í þessari viku, ég myndi halda að þetta séu tvær til þrjár vikur," sagði Wenger um endurkomu Wilshere.
,,Ég ræddi við Roy Hogdson (landsliðsþjálfar) og sagði honum að Wilshere yrði klár fyrir England. Hann verður kominn í stand. Jack gæti reynst óvænt leynivopn."
Athugasemdir