Heimild: Mirror/Sunday People
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, glímir við meiðsli á hæl sem valda honum miklum sársauka eftir hvern leik.
Hann er hinsvegar staðráðinn í að láta meiðslin ekki stöðva sig á jafn mikilvægum tímapunkti, en leikmenn og stuðningsmenn Liverpool eru farnir að sjá Englandsmeistaratitilinn fyrir sér í hyllingum.
Samkvæmt Sunday People er Gerrard sárþjáður eftir hvern leik sem hann spilar, en fjögur ný pör af takkaskóm á tímabilinu hafa ekki náð að lina þjáningar hans.
Styðst hann við sérstakan hlífðarbúnað á æfingum til að geta æft af krafti, en Gerrard hefur áður glím við svipuð meiðsl, þó ekki jafn slæm.
Engin læknisfræðileg lausn er á vandamálinu og því þarf Gerrard að bíta í það súra epli að spila með meiðslunum.
Athugasemdir