Sundsvall sigraði Östers IF með tveimur mörkum gegn engu í sænsku fyrstu deildinni í dag.
Daniel Sliper og Adam Chennoufi skoruðu mörk Sundsvall í dag en fyrra markið kom á 35. mínútu og það síðara á 72. mínútu.
Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson voru báðir í byrjunarliði Sundsvall og léku allan leikinn.
Sundsvall er í þriðja sæti deildarinnar eftir fyrstu þrjá leikina en liðið er með 6 stig og hafa þeir Jón Guðni og Rúnar tekið þátt í öllum leikjunum.
Athugasemdir