Þróttur R. er í æfingaferð í Birmingham á Englandi en liðið sigraði um helgina lið frá akademíu Nike 3-0 í æfingaleik á St. Georges Park æfingasvæði á vegum enska landsliðsins.
Í Nike akademíunni eru leikmenn fæddir 21 árs og yngri sem freista þess að landa atvinnumannasamningi hjá liðum í Evrópu.
75 þúsund leikmenn hvaðanæva úr heiminum sóttu um inngöngu fyrir tímabilið í ár.
Nike Academy hefur borið sigurorð af U21 árs liði PSG og AC Milan í vetur.
Þrír leikmenn léku til reynslu hjá Þrótti í leiknum og einn þeirra skoraði en Alexander Veigar Þórarinsson skoraði hin tvö mörkin.
Athugasemdir