Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. apríl 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Sparkaði í hjól og beit lögreglumann
Bille hefur oft áður verið til vandræða.
Bille hefur oft áður verið til vandræða.
Mynd: Getty Images
Danski framherjinn Nicki Bille hjá Rosenborg er í vandræðum eftir að hafa bitið lögreglumann í Kaupmannahöfn um helgina.

Bille er vandræðagemsi en hann ákvað skömmu eftir miðnætti á föstudag að sparka í nokkur reiðhjól á víðavangi.

Lögreglan mætti á svæðið en Bille vildi ekki vera til friðs og á endanum ákvað lögreglan að beita piparúða til að róa hann niður.

Bille lét ekki segjast og beit þá lögreglumann í hendina.

Bille lék áður á Ítalíu og Spáni en hann gekk í raðir Rosenborg í janúar 2013.
Athugasemdir
banner
banner