Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. apríl 2014 12:41
Daníel Freyr Jónsson
Sleppur við að hlaupa nakin - Jón Daði byrjar hjá Viking
Íslendingarnir fimm hjá Viking - Jón Daði fyrir miðju.
Íslendingarnir fimm hjá Viking - Jón Daði fyrir miðju.
Mynd: Rogalands Avis - Jørn H. Skjærpe
Hin norska Astrid H. Ekeland, stuðningsmaður Viking frá Stavangri, mun ekki þurfa að standa við loforð sitt því Jón Daði Böðvarsson er í byrjunarliði liðsins gegn Haugesund í dag.

,,Ef Daði byrjar ekki gegn FKH í næsta leik mun ég hlaupa í kringum heimavöll Viking nakin," sagði Astrid H. Ekeland á Twitter eftir 1-0 sigur á Lilleström um síðustu helgi þar sem Selfyssingurinn ungi skoraði sigurmark Viking.

Áður hafði hann skorað bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli gegn Rosenborg, en í báðum leikjunum hafði hann komið inn á sem varamaður.

Jón Daði er hinsvegar búinn að vinna sér sæti í byrjunarliðinu í dag og er þar einn fimm Íslendinga.

Sverrir Ingason, Indriði Sigurðsson, Björn Daníel Sverrisson og Steinþór Þórsson eru allir í byrjunarliði Viking í leiknum sem hefst klukkan 13:30.
Athugasemdir
banner
banner
banner