Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 21. apríl 2014 13:28
Magnús Már Einarsson
David Moyes verður rekinn
David Moyes.
David Moyes.
Mynd: Getty Images
Ensku blöðin The Telegraph og Daily Mail greina bæði frá því í dag að stjórnartíð David Moyes hjá Manchester United sé senn á enda.

Glazer fjölskyldan, sem á Manchester United, hefur misst þolinmæðina og Moyes mun fá að taka pokann sinn á næstu vikum.

Samkvæmt fréttum frá Englandi gæti Moyes mögulega fengið sparkið áður en tímabilið er úti og jafnvel fyrir leikinn gegn Norwich um næstu helgi.

Manchester United tapaði 2-0 gegn Everton í gær og hefur nú tapað ellefu leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en ensku meistararnir sitja í augnablikinu í 7. sætinu.

Fleiri og fleiri stuðningsmenn Manchester United hafa misst trúna á Moyes undanfarnar vikur og nú virðist liggja fyrir að hann muni missa starfið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner