Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 21. apríl 2014 14:00
Magnús Már Einarsson
Talsmaður Man Utd neitar ekki fréttum af Moyes
Mynd: Getty Images
Talsmaður Manchester United vill ekki neita þeim fréttum að David Moyes verði rekinn á næstunni.

Glazer fjölskyldan, sem á Manchester United, hefur samkvæmt enskum fjölmiðlum misst þolinmæðina og Moyes mun fá að taka pokann sinn á næstu vikum.

Samkvæmt fréttum frá Englandi gæti Moyes mögulega fengið sparkið áður en tímabilið er úti og jafnvel fyrir leikinn gegn Norwich um næstu helgi.

Talsmaður Manchester United var spurður út í málið í dag og hann vildi ekki játa né neita þessum fréttum.

Manchester United tapaði 2-0 gegn Everton í gær og hefur nú tapað ellefu leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en ensku meistararnir sitja í augnablikinu í 7. sætinu.
Athugasemdir
banner