Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 22. apríl 2014 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Leicester meistari eftir sigur á Bolton
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í ensku fyrstu deildinni í kvöld en þar sigurðu Leicester City og Reading sína leiki.

Lloyd Dyer skoraði eina mark leiksins er Leicester sigraði Bolton Wanderers með einu marki gegn engu á Reebok leikvanginum.

Reading kláraði þá Middlesbrough með tveimur mörkum gegn engu. Reading kláraði dæmið á fimmtán mínútum en framherjinn knái Adam Le Fondre skoraði laglegt mark áður en George Friend varð fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net nokkrum mínútum síðar.

Leicester er því sigurvegari deildarinnar en ljóst er að Burnley getur ekki náð liðinu, þar sem sjö stig eru núna á milli liðanna. Reading kom sér á meðan í umspilssæti með sínum sigri.

Úrslit og markaskorarar:

Bolton Wanderers 0-1 Leicester City
0-1 Lloyd Dyer ('62 )

Reading 2-0 Middlesbrough
1-0 Adam Le Fondre ('9 )
2-0 George Friend ('14, sjálfsmark )
Athugasemdir
banner