Stórsöngvarinn Ricky Martin sem fæddur er í Púerto-Ríkó hefur gefið út lag fyrir HM sem fram fer í Brasilíu í sumar.
Það þarf varla að kynna Ricky Martin fyrir þjóðinni en hann gerði garðinn frægan um aldamótin með laginu Livin Da Vida Loca.
Hjartaknúsarinn hefur nú gefið frá sér lag fyrir HM sem fer fram í Brasilíu í sumar en auðvitað er létt stemning yfir því.
Hægt er að hlusta og horfa á myndbandið hér fyrir neðan.
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Athugasemdir