Undarlegt og fremur óhugnalegt atvik átti sér stað á leik The Strongest og Defensor Sporting í Meistaradeild Suður-Ameríku í gær en það leit út fyrir að draugagangur hafi átt sér stað í miðjum leik.
Á 90. mínútu leiksins sást dökk fígúra hlaupa á leifturshraða í gegnum fólk uppi í stúku á leikvanginum.
Það væri hægt að útskýra þetta ef að um upptöku að leiknum væri að ræða en þetta gerðist í beinni útsendingu.
Þetta er þó ansi óhugnalegt en hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.
Athugasemdir