Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. apríl 2014 21:41
Brynjar Ingi Erluson
Sergio Ramos: Casillas er fáránlegur góður markvörður
Sergio Ramos var ánægður með sigurinn eins og gefur að skilja
Sergio Ramos var ánægður með sigurinn eins og gefur að skilja
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid á Spáni, var í skýjunum með 1-0 sigur liðsins á Bayern München er liðin mættust á Santiago Bernabeu í kvöld.

Real Madrid fer með eins marks forskot á Allianz Arena í næstu viku en liðið sigraði fyrri leikinn í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Þó svo lið Bayern hafi haldið boltanum vel þá tókst því ekki að skapa nægilega góð færi og tókst því Madrídingum að beita góðum skyndisóknum, þar sem sigurmarkið skapaðist meðal annars.

,,Við lögðum hart að okkur og það var mikil spenna í leiknum. Þetta er frábært lið en með þennan stuðning á Bernabeu þá gerir það allt þetta auðveldara," sagði Ramos.

,,Við erum vanir þessum frábæru markvörslum frá Casillas núna. Hann er svo fáránlega góður markvörður," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner