Arjen Robben, leikmaður Bayern München í Þýskalandi, segist hafa búist við meiru frá spænska stórliðinu Real Madrid í kvöld.
Real Madrid sigraði Bayern með einu marki gegn engu í kvöld en Karim Benzema skoraði eina mark leiksins.
Madrídingar hefðu getað skorað fleiri mörk tókst þó ekki. Robben, sem var eitt sinn á mála hjá spænska félaginu, bjóst við meiru frá sínum gömlu félögum í kvöld.
,,Ég verð að hrósa mínu liði. Við spiluðum gegn heimsklassaliði á Santiago Bernabeu en vorum samt betra liðið og stjórnuðum leknum. Ég verð að segja að ég bjóst við meiru frá þeim," sagði Robben.
,,Ég bjóst að þeir kæmu trylltir til leiks og myndu sækja á okkur en í stað þess biðu þeir og leyfðu okkur að stjórna leiknum," sagði hann að lokum.
Athugasemdir