Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 09. júlí 2004 19:36
Hafliði Breiðfjörð
Tilkynning frá Grindavík vegna Orra málsins
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnudeild Grindavíkur sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu vegna máls Orra Freys Hjaltalín en tilkynningin birtist á vefsíðu félagsins nú í kvöld. Hana má lesa hér að neðan.


Tilkynning frá stjórn knattspyrnudeildar UMFG
Knattspyrnudeild UMFG harmar ummæli þau sem leikmaður liðsins, Orri Freyr Hjaltalín, hefur látið hafa eftir sér um aðila tengda knattspyrnunni hér á landi og birst hefur í fjölmiðlum. Knattspyrnudeildin vill ítreka það að leikmaðurinn hefur þegar verið kvaddur á fund deildarinnar til útskýringar á máli sínu.Orri Freyr hefur þegar beðist opinberlega afsökunar á framferði sínu. Á fundi stjórnarinnar var ákveðið að hann muni sæta ströngum refsingum fyrir agabrot sitt, þ.m.t. sektargreiðslu Orð þessi setja ljótan blett á annars gott og metnaðarfullt starf sem unnið er í knattspyrnumálum hér á landi. Þeir sem sinna þessu; stjórnarmenn, dómarar, leikmenn eða aðrir aðilar eiga á engan hátt skilið það sem sett hefur verið fram og stjórn knattspyrnudeildarinnar vill ítreka það að hún mun á neinn hátt sætta sig við slikt framferði en í staðinn halda hátt á lofti kjörorðinu að knattspyrna er „leikur án fordóma“.


Sjá einnig:
Dónalegur Grindvíkingur
Afsökunarbeiðni frá Orra Frey Hjaltalín
Tilkynning frá Grindavík vegna Orra málsins
Orri fékk eins leiks bann fyrir ummælin
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner