Staðreyndir um Didier Drogba
Nú þegar Chelsea og Marseille hafa komist að samkomulagi um kaup á Didier Drogba er vert að líta aðeins á ferill kappans.
1978 - Fæddur 11. mars Abidjan, Fílabeinsströndinni. Elstur af sjö systkinum.
1983 - Flutti til Frakklands, 5 ára gamall.
1993 - Tekur sér eins árs frí frá knattspyrnu.
1998 - Skrifar undir hjá Le Mans, sem var þá frönsku annari deildinni. Skorar aðeins 12 mörk í 64 leikjum yfir 4 leiktíðir.
2001-02 - Flytur sig til Guingamp. Skorar þrjú mörk í 11 leikjum á fyrsta tímabilinu sínu með félaginu, bætti það með 17 mörkum í 13 leikjum á öðru tímabili.
2002 - Spilar fyrir Fílabeinsströndina í fyrsta skipti.
2003 - Skrifar undir hjá Marseille fyrir 4 milljónir punda.
2003-04 - Skorar 18 mörk í 35 leikjum í frönsku deildinni og 11 mörk í 16 Evrópuleikjum til að hjálpa félginu í úrslit UEFA bikarsins.
2004, maí - Útnefndur leikmaður ársins í Frakklandi. Hann var einnig verðlaunapur fyrir að skora besta markið, á móti Montpellier.
2004, 19. júlí - Marseille samþykkir tilboð frá Chelsea uppá 24 milljónir punda, sem er nýtt franskt met.



