Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur Fótbolta.net, er ekki tilbúinn að segja að Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, sé besti leikmaður Pepsi-deildarinnar en telur hann þó mikilvægastan.
Guðmundur fór yfir komandi umferð í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag og má heyra hann fara yfir umferðina í spilaranum hér að ofan.
Værukærð hjá FH?
Allir leikir umferðarinnar voru skoðaðir og rætt um FH-liðið sem hefur lítið verið að skora í sínum leikjum og gerði aðeins 1-1 jafntefli við Þór á heimavelli í síðustu umferð. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, gagnrýndi sína menn í viðtölum eftir leik.
„Heimir hefur gert það einu sinni til tvisvar á tímabili að gagnrýna sitt lið opinberlega. Hingað til hafa menn brugðist rétt við," segir Guðmundur.
„Þetta er orðið það rútinerað hjá FH-liðinu að maður er að sjá sömu sóknirnar aftur og aftur. Þetta er árangursríkt en það er spurning hvort leikmenn séu búnir að fá leið á því að gefa sömu sendingarnar og taka sömu hlaupin ár eftir ár. Hvort það sé komin einhver værukærð í þetta?"
„Þetta er mjög árangursrík taktík en það er eins og leikmenn séu ekki alveg að nenna þessu lengur."
Sunnudagur:
17:00 ÍBV - KR
17:00 Þór - Valur
19:15 Fylkir - Keflavík
19:15 Víkingur - Breiðablik
19:15 Stjarnan - Fjölnir
Mánudagur:
19:00 Fram - FH (Beint á Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir