lau 24. júlí 2004 09:00
Elvar Geir Magnússon
Stuttar fréttir úr ítalska boltanum
Verður Emerson svart/hvítur?
Verður Emerson svart/hvítur?
Mynd: Elvar Geir Magnússon
Við höfum verið dugleg við að líta aðeins yfir til Ítalíu og kíkja á hvað er að frétta úr boltanum þar. Það er kannski skiljanlegt enda hefur umfjöllun okkar um ítalska boltann verið mikil undanfarið ár og mun ekki minnka nú þegar hann á að koma aftur í sjónvarp landsmanna. Hér að neðan getur að líta helstu boltafréttir ítölsku pressunnar.


  • Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Roma verður líklegast orðinn leikmaður Juventus í næstu viku. Félögin tvö eiga eftir að komast að samkomulagi um kaupverð en búið er að ganga frá nánast öllu öðru. Roma vill víst fá Manuele Blasi til sín sem hluta samningsins.


  • Juventus mun fá harða samkeppni um varnarmanninn Massimo Oddo hjá Lazio. Inter hefur snúið sér að kappanum eftir að hafa mistekist að fá Jose Ze Maria frá Perugia.


  • Alberto Gilardino hætti skyndilega við að framlengja samning sinn við Parma. Sóknarmaðurinn fundaði með stjórnarmönnum liðsins í gær en ekkert varð úr því að hann krotaði undir. Þessi ungi leikmaður skoraði 23 mörk síðasta leiktímabil. Ítalska pressan er viss um að hann endi sem leikmaður Juventus í lok sumar.


  • Filippo Inzaghi leikmaður AC Milan hefur fengið fyrirskipun frá læknum um að hvílast í sex vikur til viðbótar. Hann fór í myndatöku í vikunni og er ljóst að þessi 31.árs leikmaður hefur ekki náð sér fullkomlega af ökklameiðslunum.


  • Nú hefur varnarmaðurinn Thomas Helveg yfirgefið Inter og haldið til Norwich í ensku úrvalsdeildina. Allt bendir til þess að Kily Gonzalez sé einnig á förum frá liðinu og þá jafnvel í lán til Espanyol á Spáni.


  • Ástarsambandi silfurrefsins Fabrizio Ravanelli og Perugia er lokið. Ravanelli fékk nýjan samning í hendurnar til eins árs en fór síðan fram á meira. Þetta skapaði illindi við Gaucci fjölskylduna og því ljóst að Ravanelli leikur ekki í búningi Perugia aftur.


Slapp
banner
banner