mán 26. júlí 2004 13:09
Sir Alex: Heinze spilar jafnvel aldrei fyrir United!
Ósáttur!
Ósáttur!
Sir Alex Ferguson hefur ekki leynt gremju sinni yfir því að missa tvo menn á Ólympíuleikana sem hefjast í ágúst. Það þýðir að þeir Cristiano Ronaldo sem var valinn í landslið Portúgala og Gabriel Heinze sem er í liði Argentínu missa af nokkrum leikjum í byrjun tímabilsins hjá United.

Ekki nóg með það heldur koma þeir einnig dauðþreyttir til baka enda fóru þeir báðir strax til æfinga með landsliðum sínum, Ronaldo fyrir EM og Heinze fyrir Copa America sem lauk í gær. Einhverja hvíld verða mennirnir jú að fá en nú er Heinze að fara að æfa áfram með liðinu sem fer á ÓL.

Sir Alex hefur áður lýst yfir óánægju sinni með að Ronaldo fari en nú gengur hann en lengra og segir nú að ferill Heinze sem United keypti fyrr í sumar fyrir 6 milljónir punda frá Paris St. Germain gæti verið í hættu!
Sir Alex lét þessi orð falla á opinberri heimasíðu United: "Þessi staða gæti neitað Gabriel Heinze ferli hjá Manchester United."

Og áfram hélt hann: "Vinstri bakvarðarstaðan var hans. En í byrjun tímabilsins verð ég að setja einhvern annan þar ef hann er á Ólympíuleikunum. Hann gæti átt í erfiðleikum með að komast í liðið. Reyndar er ekkert víst að hann spili nokkurn tíman leik fyrir Manchester United. Hann hefur tækifæri til að byrja feril hérna en það er verið að taka það af honum."

Sir Alex staðfesti að Ronaldo fengji góða hvíld eftir að hann kemur af Ólympíuleikunum: "Við verðum að gefa Ronaldo tveggja mánaða frí þegar hann kemur aftur svo hann spilar ekki fyrr en í nóvember. Þetta er fáránlegt" segir bálreiður skotinn.
"Við erum að reyna að fá þeirra (Heinze og Ronaldo) álit á þessu af því að við erum vonsviknir. Ég held að þeir hafi ekki einu sinni það mikinn áhuga á að spila þarna eftir að hafa spilað á Euro 2004 (Ronaldo) og á Copa America (Heinze).

Stjórnarformaður United, David Gill var á líka ósáttur: "Við keyptum Heinze þann 1. júlí en sjáum hann ekki fyrr en í september ef hann spilar í Aþenu. Við borgum launin hans í tvo mánuði, hann verður mikilvægur hlekkur í liðinu okkar svo maður spyr sig hvort þetta sé sanngjarnt? Það getur ekki verið það."
Slapp