Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 10. júlí 2014 15:46
Magnús Már Einarsson
Mynd: Fellaini búinn að láta hárið fjúka
Mynd: Twitter
Marouane Fellaini, leikmaður Manchester United, hefur látið hárið fjúka.

Fellaini hefur verið með afró undanfarin ár en nú hefur hann ákveðið að kveðja það.

,,Ef við vinnum HM þá mun ég raka allt hárið af mér," sagði Fellaini fyrir HM.

Belgar duttu út í 8-liða úrslitum en Fellaini ákvað samt að kíkja í klippingu eftir mótið.

Hann ákvað að taka ekki alveg allt hárið þó að meirihlutinn hafi fengið að fjúka.

Fellaini fékk mikla gagnrýni á sínu fyrsta tímabili með Manchester United en spurning er hvort hann muni spila betur með nýju hárgreiðsluna.

Hér til hliðar má sjá Fellaini með nýju greiðsluna en hér að neðan má sjá gömlu greiðsluna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner