Ajax hefur samþykkt tilboð frá QPR í Kolbein Sigþórsson samkvæmt frétt Sky í dag.
Talið er að tilboðið hljóði upp á fimm milljónir punda.
Talið er að tilboðið hljóði upp á fimm milljónir punda.
Kolbeinn gæti því gengið í raðir QPR á næstu dögum ef hann nær samningum við félagið.
Hinn 24 ára gamli Kolbeinn hefur leikið með Ajax undanfarin þrjú tímabil en hann var áður á mála hjá AZ Alkmaar.
Harry Redknapp, stjóri QPR, hefur verið að styrkja leikmannahópinn að undanförnu fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Athugasemdir