„Þetta var svekkjandi, það var hart tekist á og greinilegt að bæði liðin þekkja hvort annað“,sagði Hlynur Svan Eirksson þjáflari Breiðabliks eftir tap þeirra gegn Stjörnunni í kvöld.
„Dómarinn var ofan í þessu og hann var ekki að fara að dæma víti en línuvörðurinn flaggaði“, sagði hann um vítasprynuna sem Harpa Þorsteinsdóttir skoraði úr og tryggði Stjörnunni sigur.
„Við viljum helst að leikurinn fari fram strax á eftir, þannig líður öllum eftir þennan leik“.
„Þetta eru tvö frábær lið og vona að stuðningsmenn Blika komi og styðji stelpurnar“, en liðin mætast aftur á föstudaginn í undanúrslitum bikarsins og þá á Kópavogsvelli.
Nánar er rætt við Hlyn í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir