Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. júlí 2014 10:54
Magnús Már Einarsson
Yfirlýsing frá Sindra - Harma atvikið á Hellissandi
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Mynd: Getty Images
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir atvik sem átti sér stað í leik hjá 2. flokki félagsins gegn Snæfellsnesi á sunnudag.

Leikmaður Sindra missti þá stjórn á skapi sínu undir leiks og réðst á leikmann Snæfellsness með þeim afleiðngum að hann þurfti að fara með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landsspítalann í Reykjavík.

Stjórn Sindra segist harma atvikið í yfirlýsingu í dag og líta það mjög alvarlegum augum.

Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Sindra
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra harmar atvik sem átti sér stað á Hellissandsvelli í leik Snæfells og Sindra í 2. flokki karla, sunnudaginn 20. júlí sl., þar sem tveimur leikmönnum lenti saman undir lok leiksins. Leikmaður Sindra gerðist sekur um líkamsárás sem leiddi til þess að leikmaður Snæfells var fluttur á sjúkrahús. Stjórn knattspyrnudeildar Sindra harmar mjög þetta atvik og vill fyrir hönd félagsins og leikmannsins biðja leikmann Snæfells og fjölskyldu hans afsökunar.

Stjórn knattspyrnudeildar Sindra lítur atvik sem þetta mjög alvarlegum augum. Stjórnin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að hjálpa leikmanni Sindra í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að sambærilegt atvik endurtaki sig. Í þeirri viðleitni mun stjórnin leita aðstoðar barnaverndaryfirvalda á Höfn og fagfólks.

Skýrsla dómara leiksins er nú þegar komin inn á borð aganefndar KSÍ. Leikmaður Sindra mun una niðurstöðu aganefndar KSÍ þegar hún liggur fyrir. Það sama mun knattspyrnudeild Sindra gera.

Það er von stjórnar knattspyrnudeildar Sindra að atvik þetta verði ekki til þess að skaða gott orðspor knattspyrnunnar á Íslandi. Stjórnin mun nú sem endranær hvetja leikmenn, þjálfara og stuðningsmenn til að sýna háttvísi og heiðarleika. Þannig bætum við íslenska knattspyrnu.

Með virðingu og vinsemd.
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra

Sjá einnig:
Fluttur með þyrlu eftir árás í leik á Hellissandi
Leikmaður Snæfellsness á batavegi
Leikmaður Snæfellsness útskrifaður af spítala
Líkamsárásin á Hellissandi: Úrskurði frestað
Athugasemdir
banner
banner