Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 24. júlí 2014 11:16
Magnús Már Einarsson
Leikjaplanið á Spáni - Fyrsti leikur Suarez verður gegn Real
Alfreð mætir Real Madrid í öðrum leik
Suarez spilar fyrsta leik sinn með Barcelona gegn Real Madrid.
Suarez spilar fyrsta leik sinn með Barcelona gegn Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Nú rétt í þessu var leikjaplanið í La Liga birt fyrir komandi tímabil. El Clasico leikirnir milli Real Madrid og Barcelona fara fram í október og mars.

Fyrri leikurinn verður á Santiago Bernabeu þann 26. október en degi áður losnar Luis Suarez úr fjögurra mánaða banni sínu. Fyrsti leikur hans með Barcelona verður því gegn Real Madrid.

Síðari El Clasico leikurinn fer síðan fram á Nou Camp þann 22. mars.

Alfreð Finnbogason og félagar í Real Sociedad mæta Eibar í fyrstu umferð og Real Madrid á heimavelli í 2. umferð. Sociedad mætir síðan Barcelona í 17. umferðinni.

Fyrsta umferð:
Sevilla - Valencia
Levante - Villarreal
Málaga - Athletic Bilbao
Rayo Vallecano - Atlético Madrid
Celta Vigo - Getafe
Barcelona - Elche
Almería - Espanyol
Eibar - Real Sociedad
Granada - Deportivo La Coruna
Real Madrid - Córdoba
Athugasemdir
banner
banner
banner