Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 24. júlí 2014 12:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho ætlar að halda bæði Cech og Courtois
Petr Cech.
Petr Cech.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, ætlar að halda bæði Petr Cech og Thibaut Courtois hjá félaginu á komandi tímabili.

Cech hefur varið mark Chelsea undanfarin tíu ár en Courtois hefur staðið sig vel á láni hjá Atletico Madrid undanfarin tímabil.

,,Annar þeirra verður ekki ánægður en stuðningsmenn Chelsea verða ánægðir og þeir eru mikilvægari en leikmenninrir," sagði Mourinho.

,,Ef stuðningsmennirnir hafa Cech eða Courtois þá verða þeir ánægðir því þeir vita að við erum í öruggum höndum."

,,Við þurfum að taka ákvörðun en við fáum borgað fyrir að taka þær og ég er mjög ánægður með stöðuna."

Athugasemdir
banner
banner