Víkingur R. hefur fengið miðju og kantmanninn Pál Olgeir Þorsteinsson á láni frá Breiðabliki.
Páll Olgeir hefur komið við sögu í sjö leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann mun nú leika með Víkingi út tímabilið.
Páll Olgeir hefur komið við sögu í sjö leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann mun nú leika með Víkingi út tímabilið.
Páll Olgeir þekkir til í Fossvoginum því hann spilaði sjö leiki með Víkingi á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.
Páll Olgeir er fæddur árið 1995 en hann á að baki leiki með U19 og U17 ára landsliði Íslands.
Hann gæti spilað sinn fyrsta leik með Víkingi á sunnudag þegar liðið heimsækir Fram.
Athugasemdir