Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 25. júlí 2014 22:53
Magnús Már Einarsson
Hilmar Þór í Keflavík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Keflavík hefur fengið Hilmar Þór Hilmarsson á láni frá Stjörnunni út tímabilið.

Hilmar Þór hefur ekkert komið við sögu hjá Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar.

Þessi 23 ára gamli leikmaður getur leikið bæði á vinstri kantinum og í bakverði.

Í fyrra var Hilmar í láni hjá Fjölni en hann hjálpaði liðinu að vinna 1. deildina.

Árið 2011 var Hilmar einnig í láni hjá Víkingi Ólafsvík en hann hefur samtals spilað 74 deildar og bikarleiki á ferlinum.
Athugasemdir
banner
banner