Heimild: Sky Sports
Fjögur úrvalsdeildarlið eru á höttunum á eftir Carl Jenkinson, bakverði Arsenal.
Talið er að Jenkinson verði lánaður á næstu leiktíð til að fá meiri spilatíma og barist verður um hans þjónustu.
Calum Chambers er að öllum líkindum á leið til Arsenal, sem einnig hafa landað Mathieu Debuchy en það mun væntanlega kosta Jenkinson mikinn spilatíma með Arsenal.
Talað er um að West Ham, Swansea, Sunderland og Hull vilji öll nýta sér þjónustu Jenkinson, sem kom til Arsenal frá Charlton fyrir þremur árum.
Athugasemdir